HomeFréttirNemanja og Nebojsa áfram hjá Vestra

Nemanja og Nebojsa áfram hjá Vestra

Þær fregnir bárust úr herbúðum Vestra á Ísafirði í dag að nafnarnir Nebojsa og Nemanja Knezevic hafi framlengt við félagið og muni leika með því á næstu leiktíð. Báðir voru þeir algjörir lykilmenn í liði Vestra í vetur. Þetta var staðfest á heimasíðu Vestra í morgun. 

 

Vestri féll út leik í undanúrslitum gegn Breiðablik um síðustu helgi en liðið missti flugið á lokasprettnum sem má að miklu leiti rekja til meiðsla Nemanja Knezevic sem spilaði ekkert í úrslitakeppninni. Ísfirðingar enduðu í fjórða sæti deildarinnar og var í hörku séns að ná efsta sætinu á tímabilinu. 

 

Á heimasíðu Vestra segir um nýlokið tímabil: „Þótt ákveðin vonbrigði hafi verið að falla úr leik í undanúrslitum getur liðið og allir sem að því standa verið sátt við árangurinn. Aðalmarkmiðin sem stefnt var að fyrir tímabilið náðust og liðið spilaði lengst um frábærlega.“

 

Einnig var það staðfest að Yngvi Gunnlaugsson mun áfram stýra liðinu en hann er með ótímabundinn samning við Vestra. Yngvi kom til liðsins fyrir þar síðasta tímabil og ljóst að mikill uppgangur er á liði Vestra frá þeim tíma.

 

Nemanja Knezevic var líklega einn besti leikmaður 1. deildar karla á þessu tímabili en hann skilaði hreint ótrúlegri tölfræði. Hann var með 22,2 stig, 17,8 fráköst og 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik á tímabilinu. 

 

Mynd: Vestri – Í dymbilvikunni var gengið frá samkomulagi við Nebojsa Knezevic og Nemanja Knezevic um að leika áfram með Vestra. Yngvi Gunnlaugsson stýrir liðnu áfram. Frá vinstir: Yngvi Gunnlaugsson, yfirþjálfari, Birna Lárusdóttir, formaður Barna- og unglingaráðs, Nebojsa Knezevic, Nemanja Knezevic og Ingólfur Þorleifsson formaður Kkd Vestra.

Fréttir
- Auglýsing -