Haukar sigruðu Keflavík í oddaleik um sæti í undanúrslitum Dominos deildarinnar fyrr í kvöld að Ásvöllum í Hafnarfirði. Keflavík er því úr leik, en Haukar munu mæta Íslandsmeisturum síðustu fjögurra ára, KR, í næstu umferð.
Karfan spjallaði við leikmann Keflavíkur, Hörð Axel Vilhjálmsson, eftir leik í DB Schenker Höllinni.



