HomeFréttirSkráningarfrestur til miðnættis í kvöld!

Skráningarfrestur til miðnættis í kvöld!

Stjarnan stendur fyrir minniboltamóti helgina 7-8. apríl næstkomandi fyrir krakka fædda árið 2008 eða fyrr. Leikið er í Ásgarði í Garðabæ og verður leikgleðin í fyrirrúmi samkvæmt mótshöldurum.  

 

Stjörnustríð er síðasta opna minniboltamót keppnistímabilsins. Við bjóðum ungum körfuknattleiks iðkendum til að enda tímabilið með okkur á skemmtilegu móti helgina 7-8. apríl. Mótið er fyrir iðkendur fædda árið 2008 og yngri.

Leikið verður eftir minniboltareglum KKÍ:
– MB 6 & 7 ára: Þrír leikmenn inná í hvoru liði. Leiktími er 1×10 mínútur þar sem hvert lið spilar minnst 5 leiki.
– MB 8 ára og eldri: Fjórir leikmenn inná í hvoru liði. Leiktími er 2×10 mínútur þar sem hvert lið spilar minnst 3 leiki. 

Stig eru ekki talin og verður því leikgleðin í fyrirrúmi. Allir þáttakendur fá svo glaðning í lok móts. Þátttökugjald er 3000 krónur á leikmann.

 

Viljum minna þjálfara á að skráningarfrestur fyrir Stjörnustríð er til miðnættis í kvöld. Skráning fer fram á [email protected]

Væri brilliant, en ef þjálfarar muna að skrá sig þá getum við haft enn betra mót fyrir krakkana.

Fréttir
- Auglýsing -