HomeFréttirKevin Durant rekinn út úr húsi í endurkomunni

Kevin Durant rekinn út úr húsi í endurkomunni

 

Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Í AT&T Höllinni í San Antonio sigruðu heimamenn í Spurs lið Oklahoma City Thunder. Sigurinn einkar mikilvægur fyrir Spurs, sem eiga ekki langt í að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni, en þeir eru eftir leikinn í 4. sæti vesturstrandarinnar.

 

Í Oracle Höllinni í Oakland töpuðu heimamenn í Golden State Warriors fyrir Milwaukee Bucks. Leikmenn meistara Warriors mikið verið meiddir síðustu vikurnar. Stjörnuleikmennirnir Kevin Durant og Draymond Green léku með þeim á nýjan leik í nótt, en það var þó ekki nóg til þess að koma í veg fyrir ósigurinn, en Durant var rekinn út eftir aðeins 17 mínútna leik. Atkvæðamestur hjá Bucks var Giannis Antetokounmpo sem skoraði 32 stig, tók 4 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.

 

Brot úr leik Bucks og Warriors:

 

Staðan í deildinni

 

Úrslit næturinnar

Indiana Pacers 106 – 103 Sacramento Kings

Washington Wizards 92 – 103 Detroit Pistons

Chicago Bulls 92 – 103 Miami Heat

Oklahoma City Thunder 99 – 103 San Antonio Spurs

Miwaukee Bucks 116 – 107 Golden State Warriors

Fréttir
- Auglýsing -