HomeFréttirHildur Sig ekki áfram með Blika

Hildur Sig ekki áfram með Blika

Hildur Sigurðardóttir sem þjálfað hefur meistaraflokk kvenna hjá Breiðablik mun ekki þjálfa liðið áfram. Þetta staðfestu forsvarsmenn Breiðabliks við Karfan.is í morgun. 

 

Hildur hefur ákveðið að taka sér hlé frá þjálfun í bili en vonast er til þess að hún verði í kringum liðið í einhverri mynd. Hildur hefur komið liði Blika í Dominos deildina og endaði í sjöunda sæti þar á sínu fyrsta tímabili.

 

Hildur hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari með Snæfell og KR og er einn besti leikmaður sem spilað hefur í deildinni. Hún hefur gert frábæra hluti með ungt lið Breiðablik sem verður spennandi að fylgjast með í framtíðinni.

Fréttir
- Auglýsing -