Finnur Jónsson þjálfari undir 20 ára liðs kvenna hefur valið 25 manna æfingahóp fyrir verkefni sumarsins, en honum til aðstoðar er Hörður Unnsteinsson. Liðið verður skipað leikmönnum fæddum 1998-99 og keppir það á Evrópumóti í Rúmeníu 7.-15. júlí.
Liðið er í B-riðli með Hvíta-Rússlandi, Danmörku, Tyrklandi, Búlgaríu og Tékklandi. Í A-riðli leika Bretland, Grikkland, Úkraína, Litháen, Rúmenía og Ísrael. Eftir riðlakeppnina verður svo leikið um sæti.
Tekið er fram að þær Emelía Ósk Gunnarsdóttir og Þóranna Kika Hodge Carr eru ekki með sökum meiðsla. Þá gaf Elfa Falsdóttir ekki kost á sér, en þær voru allar valdar í hópinn.
Eftirtaldir leikmenn skipa æfingahópinn:
| Anna Lóa Óskarsdóttir | Haukar |
| Anna Soffía Lárusdóttir | Snæfell |
| Arndís Þóra Þórisdóttir | Breiðablik |
| Björk Gunnarsdóttir | Njarðvík |
| Bríet Lilja Sigurðardóttir | Skallagrímur |
| Dagbjört Dögg Karlsdóttir | Valur |
| Dýrfinna Arnardóttir | Haukar |
| Elín Sóley Hrafnkelsdóttir | Valur |
| Erna Freydís Traustadóttir | Njarðvík |
| Eyrún Ósk Alfreðsdóttir | Breiðablik |
| Gunnhildur Bára Atladóttir | KR |
| Hulda Ósk Bergsteinsdóttir | Njarðvík |
| Katla Rún Garðarsdóttir | Keflavík |
| Kristín Rós Sigurðardóttir | Breiðablik |
| Linda Þórdís Barðdal Róbertsdóttir | Njarðvík |
| Magdalena Gísladóttir | Haukar |
| Ragnheiður Björk Einarsdóttir | Haukar |
| Svanhvít Ósk Snorradóttir | Keflavík |
| Sylvía Rún Hálfdanardóttir | Stjarnan |
| Thelma Dís Ágústsdóttir | Keflavík |
| Valdís Ósk Óladóttir | Stjarnan |
| Þórdís Jóna Kristjánsdóttir | Haukar |



