Franska úrvalsdeildin (Pro A) hefur valið Martin Hermannsson sem leikmann 29. umferðar deildarinnar. Þetta var tilkynnt á heimasíðu deildarinnar í morgun.
Chalons/Reims vann góðan sigur á Le Portel í 29. umferð Pro A deildinni. Reims var mun betra liðið allan leikinn og gaf forystuna ekki eftir. Lokastaðan var 83-75 fyrir liðinu á sínum heimavelli.
Á heimasíðu deildarinnar segir að það sé magnað að Martin sé orðin „Go to„ gæi liðsins þrátt fyrir ungan aldur og reynsluleysi í þessari deild. Hann hafi sýnt leiðtogahæfileika og gæði í leiknum sem sást best á því að hann var með 10 stig og þrjár stoðsendingar í fjórða leikhluta til að ná í sigurinn.




