Boston Celtics sigruðu í gærkvöldi Celevalnd Cavaliers í fyrsta leik liðanna í úrslitum Austurstrandarinnar, 83-108. Celtics leiða einvígið því 1-0, en næsti leikur liðanna mun einnig fara fram í Boston áður en einvígið færir sig yfir til Cleveland í tvo leiki þar á eftir.
Stigahæstur leikmanna Celtics í leiknum var Jaylen Brown með 23 stig og bætti hann við 8 fráköstum. Fyrir Cleveland var Kevin Love atkvæðamestur með 17 stig, 8 fráköst og 3 stoðsendingar.
Skemmtilegt þótti að LeBron James hafi munað upphafsmínútur leiksins upp á tíu:
Gæjinn mundi bara fyrstu 4 mínútur leiksins play for play.. #defendtheland https://t.co/0Nd6vIznVR
— Matthías Sigurðarson (@matosig) May 13, 2018
How's that for a memory? _x1f62e_#GameTime pic.twitter.com/YpFLxw2K3A
— NBA TV (@NBATV) May 13, 2018
Úrslit
Cleveland Cavaliers 83 – 108 Boston Celtics
(Celtics leiða 1-0)
Það helsta úr leiknum:



