HomeFréttirSerbía vann stórsigur á Ítalíu og Litháen lagði Bosníu í riðli Íslands

Serbía vann stórsigur á Ítalíu og Litháen lagði Bosníu í riðli Íslands

Serbía og Litháen unnu bæði mikilvæga sigra í J-riðli undankeppni HM 2027 í körfubolta í kvöld. Serbar völtuðu yfir Ítali á heimavelli, 102–76, á meðan Litháar sóttu 85–73 útisigur gegn Bosníu og Hersegóvínu.

Með sigrinum er Serbía í 2. sæti riðilsins með sjö sigra (7–3), á eftir toppliði Tyrklands (9–1) sem tryggði sér sæti á HM með sigrinum á Íslandi í dag. Ítalía og Litháen eru bæði með sex sigra (6–4) og berjast við Serbíu um tvö laus sæti í lokaumferðunum í febrúar og mars, þar sem Serbar koma meðal annars í Laugardalshöll.

Marko Gudurić var stigahæstur hjá Serbíu með 27 stig og 5 stoðsendingar, Alen Smailagić skoraði 18 stig og Nico Mannion var atkvæðamestur Ítala með 17 stig. Hjá Litháen skoraði Osvaldas Olisevičius 16 stig og Arnas Butkevičius skilaði 13 stigum og 10 fráköstum, en Džanan Musa skoraði 23 stig fyrir Bosníu.

Úrslit kvöldsins þýða jafnframt að hvorki Ísland í 5. sæti (4–6) né Bosnía í 6. sæti (3–7) eiga lengur möguleika á að komast á HM í Katar á næsta ári.

Fréttir
- Auglýsing -