HomeFréttirÆgir Þór meðal bestu fyrirliða Evrópu hjá FIBA – kjóstu íslenska fyrirliðann...

Ægir Þór meðal bestu fyrirliða Evrópu hjá FIBA – kjóstu íslenska fyrirliðann hér

Alþjóðakörfuknattleikssambandið, FIBA, hefur opnað fyrir kosningu á besta fyrirliða Evrópuundankeppni HM 2027 og er Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, að sjálfsögðu á meðal þeirra sem hægt er að kjósa í kosningunni á vef FIBA.

Baráttan um sæti á heimsmeistaramótinu í Katar á næsta ári stendur sem hæst um þessar mundir og hefur Ægir Þór leitt íslenska liðið af miklu fordæmi, líkt og sást í fræknum 113–101 sigri Íslands gegn Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll á fimmtudagskvöldið. Í umfjöllun FIBA kemur fram að á listanum yfir fyrirliða í þessum landsliðsglugga sé að finna bæði rótgrónar goðsagnir og leiðtoga sem drífa liðsfélaga sína áfram með vinnusemi og leiðtogahæfileikum.

Þar er Ægir Þór í félagsskap þekktra stjarna úr evrópskum körfubolta, á borð við Dario Šarić (Króatíu), Tornike Shengelia (Georgíu), Kostas Papanikolaou (Grikklandi), Vladimir Lučić (Serbíu), Willy Hernangómez (Spáni) og Kenan Sipahi (Tyrklandi) – en sá síðastnefndi leiðir einmitt tyrkneska liðið þegar Ísland sækir Tyrki heim í Istanbúl á morgun, sunnudag.

Íslenskir körfuboltaáhugamenn geta látið til sín taka og stutt við bakið á sínum manni með því að greiða Ægi Þór atkvæði í fyrirliðakosningu FIBA.

Taktu þátt í kosningunni á vef FIBA hér og kjóstu Ægi Þór sem uppáhaldsfyrirliða umferðarinnar.

Fréttir
- Auglýsing -