HomeFréttirFimm Evrópuþjóðir komnar á HM 2027 – spennan í riðli Íslands í...

Fimm Evrópuþjóðir komnar á HM 2027 – spennan í riðli Íslands í algleymingi fyrir sunnudaginn

Það er farið að skýrast verulega hvaða þjóðir tryggja sér sæti á heimsmeistaramótinu í Katar á næsta ári, en tólf Evrópuþjóðir komast á lokamótið – þrjú efstu liðin úr hverjum hinna fjögurra milliriðla.

Fyrir 9. umferðina, sem leikin var á fimmtudag og föstudag, var aðeins Tyrkland búið að tryggja sér farseðilinn á HM eftir að hafa unnið fyrstu átta leiki sína. Í kjölfar úrslita síðustu tveggja daga hafa fjórar þjóðir til viðbótar bæst í hópinn: Þýskaland, Króatía, Pólland og Frakkland.

Þar með eru öll þrjú sætin í K-riðli þegar ráðin eftir að Þýskaland lagði Lettland (78–76) og Króatía vann Pólland (80–69) í gærkvöldi, en Frakkar tryggðu sér toppsæti L-riðils með 81–73 útisigri á Eistlandi. Í I-riðli er hins vegar allt galopið þar sem ekkert lið gat tryggt sig áfram í umferðinni.

Staðan í riðli Íslands (J-riðli) í járnum

Í riðli Íslands, J-riðli, getur ekkert lið annað en Tyrkland tryggt sig áfram fyrr en í lokaumferðunum, en úrslit fimmtudagsins hleyptu gríðarlegri spennu í baráttuna um hin tvö lausu sætin.

Ísland vann frækinn 113–101 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll, á sama tíma og Ítalía batt enda á sigurgöngu Tyrklands (86–72) og Litháen valtaði yfir Serbíu (97–78). Með þessum úrslitum lyfti Ísland sér upp í 5. sæti riðilsins og er nú aðeins einum sigri á eftir Litháen í 4. sæti og tveimur sigrum frá Serbíu og Ítalíu í 2.–3. sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Staðan í J-riðli eftir 9 umferðir:

Íslenska landsliðið á afar krefjandi útileik gegn toppliði Tyrklands á morgun, sunnudaginn 29. nóvember, á sama tíma og Bosnía tekur á móti Ítalíu og Serbía fær Litháen í heimsókn. Sigur gegn þegar öruggu liði Tyrkja myndi koma Íslandi í frábæra stöðu fyrir lokaumferðirnar í mars á næsta ári.

Fréttir
- Auglýsing -