Alþjóðakörfuknattleikssambandið, FIBA, hefur tilnefnt Elvar Má Friðriksson sem einn af fimm bestu leikmönnum fyrsta leikdagsins í Evrópuundankeppni HM 2027, en hægt er að greiða honum atkvæði í kosningunni á vef FIBA. Tilnefningin kemur í kjölfar stórkostlegrar frammistöðu hans í 113–101 sigri Íslands gegn Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll.
Elvar fór gjörsamlega á kostum í leiknum og skoraði 30 stig, þar af setti hann niður sex af sjö þriggja stiga skotum sínum (9 af 12 í heildina utan af velli), auk þess sem hann gaf 10 stoðsendingar, tók 4 fráköst og stal 2 boltum. Þessi frammistaða skilaði honum 39 framlagsstigum og 54 fantasístigum – mun meira en öllum öðrum leikmönnum umferðarinnar.
Samkvæmt umfjöllun vefmiðilsins Vísis varð Elvar með þessu fyrsti leikmaðurinn í sögu íslenska karlalandsliðsins til að skora 30 stig og gefa 10 stoðsendingar í sama landsleik. Þar kemur einnig fram að þetta hafi verið fimmti 30 stiga landsleikur Elvars á ferlinum, en aðeins Pétur Guðmundsson (6 sinnum) og Teitur Örlygsson (5 sinnum) hafa áður náð svo mörgum 30 stiga leikjum í íslenska landsliðsbúningnum. Þá hafa aðeins tveir leikmenn í sögunni náð 20 stigum og 10 stoðsendingum í sama landsleik, Elvar sjálfur (gegn Ungverjalandi 2025) og Jakob Örn Sigurðarson (gegn Austurríki 2007).
Auk Elvars eru þeir Rafael Lisboa (Portúgal), Margiris Normantas (Litháen), Toko Shengelia (Georgía) og Emir Sulejmanovic (Bosnía og Hersegóvína) tilnefndir í valinu á leikmanni dagsins.
Hægt er að taka þátt í kosningunni og kjósa Elvar sem leikmann dagsins á vef FIBA hér.





