HomeFréttirÁhorfandi hrinti Luka Dončić

Áhorfandi hrinti Luka Dončić

Slóvenska stórstjarnan Luka Dončić lenti í óvenjulegu atviki við áhorfanda eftir naumt 99–96 tap Los Angeles Lakers gegn San Antonio Spurs í NBA-bikarnum (NBA Cup) í nótt.

Atvikið átti sér stað í Frost Bank Center í San Antonio þegar Dončić var á leið til búningsherbergja að leik loknum. Líkt og hann gerir eftir flesta leiki kastaði Dončić svitabandi sínu upp í stúkuna til kvenkyns áhorfanda sem sat við göngin. Þegar hann heyrði að konan vildi ekki svitabandið sneri hann við til að sækja það, en þá tók karlmaður sem var í fylgd með konunni bandið upp og hrinti Dončić í kjölfarið.

Jarred Vanderbilt, liðsfélagi Dončić hjá Lakers, brást strax við og skarst í leikinn áður en öryggisverðir gengu á milli og róuðu ástandið. Dončić útskýrði atvikið fyrir blaðamönnum eftir leik:

„Ég kastaði bara svitabandinu mínu eins og ég geri eftir næstum hvern einasta leik. Svo heyrði ég að hún vildi það ekki, þannig að ég fór til baka til að sækja það og þá hrinti hann mér bara, og ég gaf það einhverjum öðrum,“ sagði Dončić.

Tap kvöldsins var einkar svekkjandi fyrir Lakers en liðið missti niður 20 stiga forskot í seinni hálfleik og er þar með úr leik í NBA-bikarnum, með 15 sigra og 4 töp á tímabilinu á meðan Spurs er með 16 sigra og 4 töp. Dončić var stigahæstur í liði Lakers með 31 stig, 8 stoðsendingar, 6 fráköst og 3 stolna bolta á 39 mínútum, þótt þriggja stiga skotin hafi ekki dottið en hann hitti aðeins úr einu af 13 þriggja stiga skotum sínum. Victor Wembanyama fór fyrir San Antonio með 25 stig og 16 fráköst.

Fréttir
- Auglýsing -