HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaÓvæntar breytingar í Dalhúsum

Óvæntar breytingar í Dalhúsum

Fjölnir hefur tilkynnt að Baldur Már Stefánsson hafi látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu.

Baldur tók við þjálfun Fjölnisliðsins í nóvember 2024 en samkvæmt tilkynningu frá félaginu hefur stjórn deildarinnar nú ákveðið að ráðast í breytingar á þjálfun liðsins. Í tilkynningunni þakkar stjórn Fjölnis Baldri fyrir samstarfið og framlag hans til körfuboltans í Grafarvogi og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

Halldór Karl Þórsson tekur við stjórn liðsins tímabundið og mun stýra Fjölni í komandi verkefnum, en liðið mætir Skallagrími í Borgarnesi í Bæjarins bestu deild karla í kvöld klukkan 19:15.

Fréttir
- Auglýsing -