HomeFréttirStjarnan sendir frá sér yfirlýsingu

Stjarnan sendir frá sér yfirlýsingu

Stjórn og barna- og unglingaráðs Stjörnunnar hefur sent frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum í kjölfar umræðunnar um alvarlegt atvik sem átti sér stað á minniboltamóti 10 ára drengja í Laugardalshöll um helgina, þar sem fullorðinn áhorfandi úr röðum Stjörnufólks hrópaði fúkyrði að táningsstúlku sem dæmdi leik liðsins.

Í yfirlýsingunni áréttar félagið þau viðmið sem gilda um framkomu allra sem koma að starfinu og leggur áherslu á að Stjarnan líði hvorki óvirðingu, niðrandi ummæli né ógnandi hegðun í garð dómara, iðkenda, þjálfara eða annarra. Tekið er fram að börn eigi að geta stundað íþróttir í öruggu og uppbyggilegu umhverfi og að hið sama gildi um unga dómara sem séu að stíga sín fyrstu skref og öðlast reynslu.

Þá eru foreldrar minntir á að þeir séu hluti af félaginu og að framkoma þeirra í stúkunni og á hliðarlínunni móti menningu Stjörnunnar, enda horfi börnin til fullorðinna og læri af þeim, ekki síst þegar á móti blæs. Foreldrar eru hvattir til að styðja börnin óháð úrslitum, sýna mótherjum virðingu og leyfa þjálfurum að þjálfa og dómurum að dæma.

Að lokum bendir félagið á að unnið sé markvisst að því að efla jákvæða menningu í gegnum foreldrasáttmála og liðsheildarverkefni Stjörnunnar, undir kjörorðunum samvinna, fagmennska, árangur og gleði.

Fréttir
- Auglýsing -