Landsliðskonurnar Tinna Guðrún Alexandersdóttir og Sigrún Björg Ólafsdóttir hafa báðar skrifað undir nýja samninga við körfuknattleiksdeild Hauka og verða því áfram í herbúðum félagsins til loka tímabilsins 2028–2029.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að þær séu báðar lykilmenn í íslenska kjarna liðsins og eigi að baki bæði titla með Haukum og leiki fyrir íslenska A-landsliðið.

Tinna Guðrún, sem er 23 ára bakvörður, var valin í úrvalslið Bónusdeildar kvenna á síðustu leiktíð og hefur verið í stóru hlutverki á þessu tímabili með 19 stig, 5 stoðsendingar og 4 fráköst að meðaltali í leik. Hin 25 ára gamla Sigrún Björg var hins vegar valin besti varnarmaður deildarinnar í fyrra og skilar 6 stigum, 7 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik í vetur.
Haukar sitja um þessar mundir í 2.–5. sæti Bónusdeildar kvenna með 10 stig eftir fyrstu sjö umferðirnar.




