Tindastóll hefur gengið frá samningi við bandaríska leikmanninn Zion Fruster um að leika með liðinu út yfirstandandi tímabil í Bónusdeild karla.
Tindastóll greindi frá félagaskiptunum í dag og birti í leiðinni kveðju frá leikmanninum, sem kveðst afar spenntur fyrir nýjum kafla á ferlinum í Skagafirði. Hann segist varla geta beðið eftir því að koma til Íslands, hefja leik með liðinu og upplifa stemninguna í troðfullri stúku á Sauðárkróki.




