Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og uppfærðu lagskiptingu Bónusdeildar karla.
Nokkrar áhugaverðar hreyfingar eiga sér stað á milli styrkleikaflokka að þessu sinni: KR og Grindavík ryðja sér upp á meðal meistaraefna á kostnað Tindastóls, Valur og Höttur taka skref upp á við og Njarðvík fellur alla leið niður í fallbaráttuna. Umræðuna er hægt að nálgast í nýjasta þættinum hér að ofan.

Lagskipting Bónusdeildar karla
1.–3. Meistaraefni
Álftanes • KR (upp) • Grindavík (upp)
4.–7. Hættulegir áskorendur („Dark Horse“)
Tindastóll (niður) • Stjarnan • Valur (upp) • Keflavík
8. Einskismannsland
Höttur (upp)
9.–12. Fallbaráttan
ÍR • Sindri • Ármann • Njarðvík (niður)

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




