HomeFréttirMeistarar New York Knicks horfa til Evrópu: „Hljómar mjög töff“

Meistarar New York Knicks horfa til Evrópu: „Hljómar mjög töff“

Nokkrir lykilmenn ríkjandi NBA-meistara New York Knicks, þar á meðal Jalen Brunson, Karl-Anthony Towns og þjálfarinn Mike Brown, útiloka ekki að reyna fyrir sér í Evrópu síðar á ferlinum og bæta Evróputitli við afrekaskrána.

Aðeins fjórtán leikmenn í sögunni hafa orðið bæði NBA- og EuroLeague-meistarar, en þar á meðal er Knicks-goðsögnin Bill Bradley. Þegar liðsmenn Knicks voru spurðir út í möguleikann á að spila í EuroLeague eða hinni nýju NBA Europe-deild, sem á að hefjast í október 2027, tóku flestir vel í hugmyndina.

Jalen Brunson, sem var valinn besti leikmaður lokaúrslitanna í sumar, sagðist opinn fyrir því eftir fimm til átta ár ef hann ætti enn nóg inni eftir NBA-ferilinn. Jordan Clarkson sagði hugmyndina hljóma mjög töff („sounds dope“) og kvaðst til í að spila hvar sem er í Evrópu þegar líða tekur á ferilinn, og Karl-Anthony Towns hefur sömuleiðis lýst yfir áhuga á NBA Europe.

Þá var þjálfarinn Mike Brown spurður hvort hann gæti hugsað sér að verða fyrsti þjálfarinn í sögunni til að vinna bæði NBA- og Evróputitilinn. Brown sló á létta strengi og sagðist vonast til að tækifærið gæfist ekki í bráð þar sem honum liði vel í New York, en bætti við að hann og eiginkona hans elskuðu Evrópu og hann væri opinn fyrir öllu í framtíðinni. Aðeins Landry Shamet vildi lítið gefa út og sagðist einbeita sér alfarið að yfirstandandi tímabili með Knicks.

Fréttir
- Auglýsing -