HomeBónus deildinBónus deild kvennaRebekka Rut fór fyrir KR í öflugum útisigri í Keflavík

Rebekka Rut fór fyrir KR í öflugum útisigri í Keflavík

KR sótti dýrmætan 103–94 útisigur gegn Keflavík í 7. umferð Bónusdeildar kvenna í Blue-höllinni í kvöld.

Rebekka Rut Steingrímsdóttir átti stórkostlegan leik fyrir gestina úr Vesturbænum og lauk keppni með 34 stig, 12 fráköst og 8 stoðsendingar. Kristrún Ríkey Ólafsdóttir skoraði 17 stig og tók 6 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir var með 16 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar og Aaliyah Pittsova skilaði 15 stigum, 14 fráköstum, 5 stoðsendingum og 5 stolnum boltum, á meðan Dazia Lawrence bætti við 11 stigum.

Hjá heimakonum var Danasia Gail Hood stigahæst á vellinum með 37 stig og 8 fráköst og Amaiquen Siciliano átti öfluga tvennu með 18 stig, 8 fráköst og 14 stoðsendingar. Anna Lára Vignisdóttir skoraði 16 stig og Emelía Ósk Gunnarsdóttir 14 stig.

KR byrjaði leikinn betur og vann fyrsta leikhluta 29–19, en Keflvíkingar svöruðu vel í öðrum leikhluta (34–23) og leiddu með einu stigi í hálfleik, 53–52. Gestirnir náðu hins vegar frumkvæðinu á ný í þriðja leikhluta og juku forskot sitt mest í 16 stig í fjórða leikhluta áður en þær innsigluðu níu stiga sigur. Yfirburðir KR í fráköstum (50–42) og stigum eftir tapaða bolta (23–8) skópu sigurinn.

Með sigrinum er KR komið með 10 stig eftir sjö leiki og situr í fjórða sæti deildarinnar, jafnt Haukum og Stjörnunni að stigum, en Keflavík er áfram í áttunda sæti með 2 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -