HomeBónus deildinBónus deild kvennaHaukar stálu sigrinum í Njarðvík eftir dramatískan lokakafla

Haukar stálu sigrinum í Njarðvík eftir dramatískan lokakafla

Haukar sóttu Íslandsmeistara Njarðvíkur heim í kvöld þegar flautað var til leiks í 7. umferð Bónusdeildar kvenna. Fyrir leikinn voru liðin hnífjöfn að stigum og því ljóst að mikið var undir. Bónusdeildin hefur tekið á sig mynd eins konar þröngs fjallvegar þar sem lítið má út af bera, enda voru KR og Valur einnig í sömu stigatölu. Með öðrum orðum: hvert stig gulls ígildi og hvert tap mögulega dýrkeypt.

Miðað við mikilvægi leiksins var þó nokkuð sérstakt hversu fámennt var í stúkunni og hversu lítið lífsmark var með stemningunni fyrstu mínúturnar. Það var eins og áhorfendur hefðu allir fengið sama te boðið. Sem betur fer átti það eftir að breytast, þótt stuðningsmannasveitirnar hafi ekki beinlínis verið að rífa þakið af húsinu.

Það voru gestirnir úr Hafnarfirði sem mættu af meiri ákefð til leiks og tóku örlítið frumkvæðið í upphafi. Njarðvíkingar létu þó ekki mikið yfir sér og héldu vel í við gestina. Eftir fyrstu tíu mínúturnar var staðan jöfn, 21–21. Landsleikjahléið virtist því að mestu hrist af sér og allt benti til þess að áhorfendur ættu eftir að fá eitthvað fyrir peninginn.

Annar leikhluti hófst með nokkuð sérstökum hætti. Liðin virtust hafa gert með sér óformlegt samkomulag um að forðast teiginn eins og heitan eldinn og láta þriggja stiga skotin tala sínu máli. Líkt og teigurinn væri þakinn rennandi hrauni og enginn leikmaður vildi hætta á að stíga þar fæti inn. Þar til Ásta Júlía Grímsdóttir ákvað að rifja upp gamla handverkið með gamaldags tjakk niðri á blokkinni og minnti viðstadda á að körfubolti væri ennþá leikur sem mætti spila nær körfunni.

Leikurinn hélt þó áfram á jafnri siglingu og aldrei munaði miklu á liðunum. Emma Thordarson sá síðan til þess að Njarðvík færi með forystuna inn í hálfleikinn þegar hún smellti niður þriggja stiga körfu á lokasekúndunum. Staðan 41–39 og heimakonur með nauma forystu.

Emma hélt uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks og opnaði hann með enn einum þristinum. Þriðji leikhlutinn var þó einkennilegur að mörgu leyti. Það var ítrekað sú tilfinning að Njarðvíkingar væru að ná betri tökum á leiknum, að þær væru smám saman að leggja grunn að því að slíta sig frá gestunum. Þegar litið var á stigatöfluna var hins vegar lítið annað að sjá en tveggja stiga mun. Haukar voru einfaldlega ólseigar og neituðu að láta reka sig út úr leiknum. Staða þeirra í deildinni er enda engin tilviljun og þær eru svo sannarlega ekki auðveld bráð fyrir neinn. Þegar gengið var til síðasta leikhlutans munaði fjórum stigum og Njarðvík enn með naumt forskot.

Það var ekki fyrr en þegar um þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma að Njarðvíkingar virtust loks ætla að slíta sig frá gestunum. Þær náðu sjö stiga forskoti og undirritaður leyfir sér að viðurkenna að hugurinn var farinn að hvarfla að því að grænar væru að sigla þessu nokkuð örugglega heim. Það var auðvitað full snemmt að fara að bóka sigurinn.

Haukar svöruðu með sjö stigum í röð, jöfnuðu leikinn og skildu Njarðvíkinga eftir með ýmsar spurningar um það hvað hefði eiginlega gerst á þessum örfáu sekúndum. Þegar aðeins tíu sekúndur voru eftir var allt jafnt. Það sem á eftir fylgdi var svo kafli sem hefði hæglega getað verið skrifaður af handritshöfundi sem hafði fengið fyrirmæli um að hámarka dramatíkina.

Njarðvíkingar náðu ekki einu sinni að koma boltanum inn á völlinn úr innkastinu og fengu því dæmdar á sig fimm sekúndur. Varnarleikur Hauka var hreint út sagt frábær og augljóst að þær höfðu lesið fyrirætlanir heimakvenna eins og opna bók. Þær vissu upp á hár hvaða leikmaður átti að fá boltann, Brittany Dinkins, og lokuðu þeirri leið með afgerandi hætti.

En ef einhver hélt að þar með væri sviðinu lokað fyrir hetjudáðir Hauka var sá hinn sami von á enn meiri glaðning. Innkastkerfi gestanna gekk upp með nær fullkomnum hætti og Jadakiss Quinn lauk sókninni með auðveldu sniðskoti. Jadakiss hafði verið frábær í leiknum og nú var hún búin að koma Haukum tveimur stigum yfir þegar aðeins fimm sekúndur voru eftir. Það var farið að hitna í kolunum og rafmagnið í húsinu orðið slíkt að maður hélt jafnvel að Suðurnesjalína 2 væri komin í gagnið.

Njarðvíkingar tóku leikhlé og þjálfarateymi þeirra þurfti að teikna upp lokasóknina á ný. Að þessu sinni var innkastskerfið einfaldað töluvert og Emma Thordarson, sem hafði átt skínandi góðan leik, tók ábyrgðina á sínar herðar. Hún lauk sókninni með sniðskoti og jafnaði metin í 88–88 þegar aðeins þrjár sekúndur voru eftir. Vörn Njarðvíkur hélt í lokasókn Hauka og framlenging varð niðurstaðan.

Það jafnræði sem hafði einkennt stærstan hluta leiksins hélt áfram í framlengingunni. Hvorugt liðið virtist ætla að gefa þumlung eftir og spennan var orðin slík að jafnvel þeir sem höfðu mætt í húsið með fremur hófstilltar væntingar voru líklega komnir á stólbrúnina. Að lokum voru það svo gestirnir úr Hafnarfirði sem héldu betur á sínum spilum og kórónuðu frábæra endurkomu sína með sigri. Eloise Pavrette steig fram þegar mest á reyndi og skilaði risastórum stigum á lokasprettinum sem reyndust Njarðvíkingum um megn að svara. Lokatölur 94–98 og Haukar fögnuðu verðskulduðum sigri af miklum krafti.

Eftirleikurinn og tölfræðin

Tilfinningin eftir leik er sú að Njarðvík hafi í raun kastað frá sér sigrinum. Það er óþarfi að leita langt yfir skammt þegar kemur að því hvað fór úrskeiðis. Einföld atriði á lokasprettinum, eins og að komast ekki yfir miðju vallarins innan átta sekúndna og að klúðra innkasti á lokasekúndunum, eru einfaldlega mistök sem ekkert lið í deildinni hefur innistæðu fyrir. Þegar uppi er staðið vógu þessi smá mistök ansi þungt.

Það verður þó aldrei tekið af Haukum að þær stóðust hverja einustu orrahríð sem Njarðvíkingar lögðu í þær. Þær sýndu karakter, þrautseigju og ótrúlega seiglu þegar á reyndi. Sérstaklega í lok venjulegs leiktíma, þegar meira að segja undirritaður var farinn að horfa á grænar sigla sigrinum í höfn. Það er kannski ekki oft sem maður þarf að endurskoða niðurstöðu leiksins þrisvar á síðustu tíu sekúndunum, en Haukar sáu til þess að kvöldið yrði ekki hversdagslegt.

Þegar litið er til einstakra leikmanna var Eloise Pavrette kannski ekki alltaf sá leikmaður sem stal fyrirsögnunum á meðan á leiknum stóð, en tölfræðin og framlag hennar á úrslitastundu tala sínu máli. Hún skilaði 24 stigum og 13 fráköstum og átti stóran þátt í sigrinum.

Jadakiss Guinn var svo hreinlega á öðru plani og var hársbreidd frá þrefaldri tvennu með 30 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar. Brittany Dinkins var ekki langt undan með sína eigin þreföldu tvennu í sjónmáli, en hún skilaði 21 stigi, 9 fráköstum og 14 stoðsendingum. Hjá Njarðvík var Emma Theodorsson stigahæst með 24 stig og átti um leið stóran þátt í því að halda heimakonum inn í leiknum.

Niðurstaðan er því afar dýrmætur sigur Hauka í leik sem hafði allt til að bera: sveiflur, stórar körfur, dramatísk lokaatriði, varnarsigur, klúður, hetjudáðir og framlengingu. Njarðvíkingar sitja eftir með sárt en verðskuldað lærdómsríkt tap, á meðan Haukar geta haldið heim á leið með bros á vör og tvö mikilvæg stig í farteskinu.

Og ef eitthvað er ljóst eftir þetta kvöld er það að í Bónusdeildinni er ekkert öruggt fyrr en lokaflautið gellur.

Tölfræði leiksins

Fréttir
- Auglýsing -