Tindastóll tók á móti Ármanni í Bónus deild kvenna í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Fyrsti leikur eftir landsleikjahlé og fyrsti heimaleikur Hlyns Einarssonar sem aðalþjálfara eftir að Israel Martin hætti.
Stólar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnar í 13-0 eftir rúmar 2 mínútur eftir þrist frá Emmu. Jónína Þórdís svaraði með þrist og fyrstu stigum Ármenninga en Stólar héldu áfram að keyra á gestina og náðu 18 stiga forystu með þrist frá Klöru en Ármann lagaði stöðuna aðeins, staðan 29-13 eftir fyrsta leikhluta. Leikurinn jafnaðist aðeins eftir þessa gríðarsterku byrjun heimakvenna en þær héldu gestunum þó alltaf í armslengdarfjarlægð og leiddu með 13 stigum í hálfleik, 49-36
Svipað var uppi á teningnum í þriðja leikhluta, Ármenningar reyndu að minnka muninn en komust lítt áleiðis enda þunnskipaðar. Það voru einkum Jónína Þórdís og Diamond Battles sem komust eitthvað áleiðis en það var langt frá því nóg og Stólar fóru inn í lokaleikhlutann með 16 stiga forystu, 67-51. Þrátt fyrir ágætis endasprett gestanna endaði leikurinn með nokkuð öruggum sigri heimakvenna 81-72
Maddie Sutton var aftur komin á parketið fyrir Tindastól og hélt upp á það með tröllatvennu, 16 stigum og 19 fráköstum. Ana Clara Paz endaði stigahæst með 17 stig og Emma áttu fínan leik í vörninni. Diamond Battles var stigahæst á vellinum með 23 stig og Jónína Þórdís skilaði 16 stigum og 12 fráköstum




