Bilbao situr í níunda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 10 stig, jafnmörg og liðin í sjötta til áttunda sæti, eftir 84–80 heimasigur gegn Baskonia í dag.
Tryggvi Snær Hlinason var í stóru hlutverki hjá Bilbao og lauk leik með 18 stig, 6 fráköst, 2 stoðsendingar og 1 stolinn bolta á 27 mínútum.