HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild kvennaÞreföld tvenna hjá Emmu Karólínu þegar Þór Akureyri valtaði yfir Selfoss í...

Þreföld tvenna hjá Emmu Karólínu þegar Þór Akureyri valtaði yfir Selfoss í toppslagnum

Emma Karólína Snæbjarnardóttir átti stórkostlegan leik og skilaði þrefaldri tvennu þegar Þór Akureyri vann yfirburðasigur á Selfossi, 107–79, í toppslag Bæjarins beztu deildar kvenna í Höllinni á Akureyri í kvöld.

Emma Karólína var gjörsamlega óstöðvandi og endaði leikinn með 32 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar. Ksenija Kuzmanovic fylgdi fast á hæla hennar með 30 stig og 5 fráköst og Nile Miller var með tvennu, 19 stig og 15 fráköst, á meðan Sigurlaug Eva Jónasdóttir og Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl skoruðu 9 stig hvor.

Hjá Selfossi bar Mariana Duran höfuð og herðar yfir aðra leikmenn með 27 stig, 8 fráköst og 12 stoðsendingar. Valdís Una Guðmannsdóttir skoraði 17 stig og Anna Katrín Víðisdóttir bætti við 14 stigum.

Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta (19–16) en eftir það stungu heimakonur af. Þór Akureyri vann annan leikhluta 29–19 og leiddi 48–35 í hálfleik, áður en þær gerðu endanlega út um leikinn í þriðja leikhluta (35–18) þar sem forskotið fór mest upp í 34 stig. Yfirburðir Norðankvenna í fráköstum (52–38), 17 þriggja stiga körfur (39% nýting) og 12 stolnir boltar gerðu útslagið.

Sigurinn kemur Þór Akureyri upp í annað sæti deildarinnar með 12 stig, jafnt toppliði Þórs Þorlákshafnar að stigum, en Selfoss situr í þriðja sætinu með 10 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -