HomeNeðri deildir2. deild karlaÚrslit dagsins í Bæjarins beztu deild kvenna og 2. deild karla –...

Úrslit dagsins í Bæjarins beztu deild kvenna og 2. deild karla – stórsigur á Akureyri og spenna í A-riðli

Fjórir leikir fóru fram í neðri deildunum í dag, laugardaginn 21. nóvember, þrír í Bæjarins beztu deild kvenna (1. deild) og einn í 2. deild karla.

Í Bæjarins beztu deild kvenna fór Þór Akureyri illa með Selfoss í toppslag á Akureyri, 107–79, og jafnaði þar með Þór Þorlákshöfn á toppi deildarinnar með 12 stig. Þá sótti Breiðablik sterkan 83–74 útisigur gegn ÍR í Breiðholti og lyfti sér upp í fjórða sætið með 8 stig, á meðan Njarðvík b lagði Hauka u á heimavelli, 66–60, og fór upp í sjöunda sæti með 6 stig.

Í A-riðli 2. deildar karla vann botnlið Reykdæla sinn fyrsta sigur á tímabilinu í æsispennandi leik gegn Aþenu/Leikni R., 96–92. Með sigrinum komst Reykdæla-liðið á blað með 2 stig en Aþena/Leiknir R. situr áfram í fimmta sæti riðilsins með 6 stig.

Úrslit dagsins:

Bæjarins beztu deild kvenna:

  • Njarðvík b 66 – 60 Haukar u
  • ÍR 74 – 83 Breiðablik
  • Þór Ak 107 – 79 Selfoss

2. deild karla – A-riðill:

  • Reykdælir 96 – 92 Aþena/Leiknir R.
Fréttir
- Auglýsing -