HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaÞórsarar steyptu Haukum af stalli í Hafnarfirði

Þórsarar steyptu Haukum af stalli í Hafnarfirði

Þór Þorlákshöfn tyllti sér á topp Bæjarins beztu deildar karla í kvöld með 14 stig, jafnmörg og Haukar sem máttu þola sitt fyrsta tap á tímabilinu.

Jovan Sljivancanin fór fyrir gestunum með 23 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar, en Djordje Dzeletovic (22 stig, 9 fráköst, 6 stoðsendingar) og Sigvaldi Eggertsson (22 stig, 7 fráköst) fylgdu fast á hæla hans á meðan Halldór Garðar Hermannsson gaf 11 stoðsendingar. Hjá Haukum var Anthony Charles Bryant Jr. atkvæðamestur með 24 stig og 7 stoðsendingar og Frosti Valgarðsson skoraði 23 stig.

Þórsarar leiddu með tíu stigum í hálfleik en Haukar sneru taflinu við með frábærum þriðja leikhluta (34–20) og náðu forystunni. Gestirnir úr Þorlákshöfn svöruðu hins vegar af miklum krafti í fjórða leikhluta, sem þeir unnu 36–16, og tryggðu sér öruggan 106–90 sigur á Ásvöllum í 8. umferð frammi fyrir 133 áhorfendum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -