HomeBónus deildinBónus deild karlaKeflavík kastaði Tindastóli niður í fimmta sætið eftir öruggan sigur í Blue-höllinni

Keflavík kastaði Tindastóli niður í fimmta sætið eftir öruggan sigur í Blue-höllinni

Keflavík fór inn í landsleikjahléð með glæsibrag í kvöld þegar liðið lagði Tindastól að velli, 92–79, í lokaleik 7. umferðar Bónusdeildar karla.

Heimamenn lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Eftir jafnar upphafsmínútur tók Keflavík völdin, vann fyrsta leikhluta 26–18 og bætti enn frekar í fyrir hlé. Staðan í hálfleik var 48–36 fyrir Keflavík eftir að liðið náði mest 17 stiga forskoti undir lok annars leikhluta. Stólarnir náðu að klóra í bakkann í þriðja leikhluta og minnkuðu muninn niður í eitt stig um miðjan hlutann, en Keflvíkingar stóðust áhlaupið og gerðu út um leikinn með sterkum lokakafla (24–18).

Yfirburðir Keflavíkur inni í teignum voru áberandi í kvöld. Liðið skoraði 44 stig í teignum gegn 28 hjá gestunum og nýtti vítin sín vel (83%), auk þess sem heimamenn pössuðu mun betur upp á boltann og töpuðu honum aðeins 13 sinnum á móti 18 töpuðum boltum Tindastóls.

Jamir Chaplin fór fyrir jöfnu liði Keflavíkur með 23 stig og 8 fráköst. Jaka Brodnik átti einnig mjög öflugan leik með 19 stig og 9 fráköst, Bragi Guðmundsson skoraði 19 stig og gaf 3 stoðsendingar og Hilmar Pétursson skilaði 15 stigum. Þá spilaði Ingvi Þór Guðmundsson sinn fyrsta leik fyrir Keflavík, kom inn af bekknum í tæpar 18 mínútur og skoraði 8 stig.

Hjá Tindastóli var Taiwo Badmus í sérflokki og langbesti maður gestanna með 30 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar af frábærri skotnýtingu (11/15 í skotum). Nemanja Djurisic skoraði 15 stig og tók 9 fráköst og Dee Bost skoraði sömuleiðis 15 stig, en aðrir leikmenn liðsins náðu sér ekki á strik í sóknarleiknum.

Sigurinn fleytir Keflavík upp í þriðja sæti deildarinnar með 10 stig, en liðið hefur nú sama stigafjölda og Valur og Tindastóll sem sitja í fjórða og fimmta sæti á eftir toppliðum KR (14 stig) og Álftaness (12 stig).

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -