HomeFréttirMiðasala hafin á síðasta heimaleik ársins hjá A-landsliði karla

Miðasala hafin á síðasta heimaleik ársins hjá A-landsliði karla

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) hefur opnað fyrir miðasölu á leik íslenska karlalandsliðsins gegn Bosníu í undankeppni Heimsmeistaramótsins, sem fram fer í Laugardalshöll fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi.

Leikurinn hefst klukkan 19:30 og er jafnframt síðasti heimaleikur A-landsliðs karla á þessu ári. Bæjarins Beztu Pylsur munu sjá um veitingasölu og stemningu í höllinni í samstarfi við Sprite.

Miðasala á viðburðinn fer fram í gegnum miðasöluvefinn Stubb.

Fréttir
- Auglýsing -