Landsliðskonan unga Rebekka Rut Steingrímsdóttir hefur skrifað undir samning við bandaríska háskólaliðið San José State University (SJSU) og mun leika með liðinu í 1. deild háskólaboltans vestanhafs á næsta tímabili.
Skólaliðið tilkynnti um komu hennar á samfélagsmiðlum í kvöld með orðunum: „Frá landi íss og elds – velkomin í fjölskylduna“.
Rebekka, sem er 18 ára bakvörður og uppalin í KR, hefur átt frábært tímabil með uppeldisfélagi sínu í Bónusdeild kvenna í vetur. Í fyrstu sex leikjum tímabilsins hefur hún skorað 17,5 stig, tekið 5,0 fráköst og gefið 5,0 stoðsendingar að meðaltali í leik, auk þess að skila 18,8 framlagsstigum.
Þá hefur Rebekka einnig stimplað sig rækilega inn í íslenska A-landsliðið að undanförnu og lék með liðinu í nýafstöðnum landsleikjaglugga í undankeppni EM 2029, þar sem hún skoraði meðal annars 10 stig og gaf 6 stoðsendingar í stórsigri Íslands á Aserbaídsjan á Ásvöllum í kvöld.




