Tindastóll heldur áfram vegferð sinni í Evrópukeppninni (ENBL) í kvöld þegar liðið heimsækir króatíska liðið BC Dubrava.
Leikurinn fer fram í íþróttahöllinni SSD Dubrava í Zagreb og hefst klukkan 19:00. Fyrir þá sem vilja fylgjast með Stólunum í Evrópuverkefninu verður leikurinn sýndur í beinu streymi eingöngu á Tindastóll TV.




