Selfoss landaði mikilvægum níu stiga sigri gegn Breiðabliki á heimavelli í Bæjarins bestu deild karla í kvöld, 99–90.
Leikurinn var spennandi í síðari hálfleik eftir að gestirnir úr Kópavogi unnu upp átta stiga forskot Selfoss frá því í hálfleik, en heimamenn reyndust sterkari í fjórða leikhlutanum og lönduðu sigrinum. Tristan Máni Morthens átti góðan leik fyrir Selfoss og skoraði 16 stig auk þess að taka 4 fráköst.
Viðtal við Tristan Mána Morthens, leikmann Selfoss, eftir leik má sjá í spilaranum hér að neðan.
Viðtal / Tómas Kárason




