Selfoss vann sterkan níu stiga heimasigur á Breiðabliki, 99–90, í sjöundu umferð Bæjarins bestu deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Selfyssingar byrjuðu leikinn betur og leiddu með átta stigum í hálfleik, 52–44, en Blikar komu til baka í þriðja leikhluta og náðu um tíma þriggja stiga forystu.
Heimamenn héldu hins vegar haus á lokasprettinum, tryggðu sér sigurinn og jöfnuðu þar með Breiðablik, KFG og KV að stigum í fjórða til sjöunda sæti deildarinnar með átta stig.
Viðtal við Bjarma Skarphéðinsson, þjálfara Selfoss, eftir leik má sjá í spilaranum hér að neðan.
Viðtal / Tómas Kárason




