Þór Akureyri mátti þola sex stiga tap gegn KV, 96–90, þegar liðin mættust í Bæjarins bestu deild karla í körfuknattleik á Meistaravöllum í kvöld. Þórsarar lentu illa undir í upphafi leiks og voru átján stigum undir eftir fyrsta leikhluta, 29–11, en sýndu mikla seiglu og náðu að hleypa mikilli spennu í leikinn í fjórða leikhluta þegar þeir minnkuðu muninn niður í eitt stig.
Heimamenn reyndust hins vegar sterkari á lokasprettinum þrátt fyrir stórleik Jalen Green sem skoraði 36 stig fyrir Þór.
Viðtal við Rúnar Ólafsson, þjálfara Þórs Akureyri, eftir leik má sjá í spilaranum hér að neðan.




