HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaFjölnir Morthens með 33 stig og 12 stoðsendingar þegar Selfoss lagði Breiðablik

Fjölnir Morthens með 33 stig og 12 stoðsendingar þegar Selfoss lagði Breiðablik

Selfoss vann sterkan níu stiga heimasigur á Breiðabliki, 99–90, í sjöundu umferð Bæjarins bestu deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Með sigrinum jafnaði Selfoss lið Breiðabliks, KFG og KV að stigum í fjórða til sjöunda sæti deildarinnar með átta stig eftir fyrstu sjö umferðirnar.

Heimamenn á Selfossi byrjuðu betur, náðu mest tólf stiga forskoti í fyrsta leikhluta og leiddu með sjö stigum að honum loknum, 22–15. Annar leikhlutinn var afar fjörugur og jafn þar sem bæði lið skoruðu mikið, en Selfoss vann hann 30–29 og leiddi því með átta stigum í hálfleik, 52–44.

Breiðablik komst betur inn í leikinn í þriðja leikhluta og náði um tíma þriggja stiga forystu, en Selfyssingar náðu vopnum sínum á ný undir lok fjórðungsins og leiddu með fimm stigum fyrir lokaleikhlutann, 75–70. Þar reyndust heimamenn sterkari á lokasprettinum, unnu fjórða leikhlutann 24–20 og tryggðu sér að lokum níu stiga sigur, 99–90.

Selfoss hitti afar vel í leiknum, eða 50% utan af velli og 42% fyrir utan þriggja stiga línuna (14 af 33), auk þess sem liðið gaf 29 stoðsendingar gegn 16 hjá gestunum.

Fjölnir Morthens átti stórkostlegan leik fyrir Selfoss og var stigahæstur heimamanna með 33 stig, auk þess sem hann gaf 12 stoðsendingar og tók 4 fráköst. Aristote Bissokot skoraði 20 stig, tók 7 fráköst og varði 3 skot, Tristan Máni Morthens bætti við 16 stigum og 4 fráköstum, Halldór Benjamín Halldórsson var með 12 stig og 9 fráköst og Avery Cordell Sullivan skilaði tvöfaldri tvennu með 10 stig og 13 fráköst.

Hjá Breiðabliki átti Adrian Darren McIntyre ótrúlegan leik og var stigahæstur á vellinum með 41 stig, 12 fráköst og 5 stolna bolta. Eysteinn Bjarni Ævarsson skoraði 14 stig, tók 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar og Einar Örvar Gíslason bætti við 13 stigum.

Tölfræði leiks

Viðtöl / Tómas Kárason

Fréttir
- Auglýsing -