Tveir heimaleikir eru fram undan hjá kvennalandsliði Íslands í undankeppni Evrópumótsins eftir góða byrjun í yfirstandandi landsliðsglugga.
Ísland lagði Írland að velli á útivelli nú fyrir helgina og mætir Sviss hér heima á morgun, laugardag, en lokaleikur gluggans verður síðan gegn Aserbaídsjan eftir helgi.
Viðtal við landsliðskonuna Rebekku Steingrímsdóttur af blaðamannafundi dagsins má sjá í spilaranum hér að neðan.




