Fram undan eru tveir heimaleikir hjá íslenska kvennalandsliðinu í undankeppni EuroBasket þar sem liðið freistar þess að fylgja eftir sigrinum góða gegn Írlandi í Dyflinni fyrr í vikunni.
Fyrri heimaleikurinn fer fram á morgun, laugardag, gegn Sviss og sá síðari gegn Aserbaídsjan eftir helgi.
Viðtal við Berglindi Kötlu Hlynsdóttur af blaðamannafundi dagsins má sjá í spilaranum hér að neðan.




