Einn leikur er á dagskrá í sjöttu umferð Bónusdeildar karla í körfuknattleik í dag þegar Grindavík tekur á móti Sindra klukkan 18:00.
Heimamenn í Grindavík sitja fyrir leikinn í sjötta sæti deildarinnar með sex stig eftir þrjá sigra og tvö töp í fyrstu fimm umferðunum, og geta með sigri í kvöld jafnað Keflavík að stigum í fimmta sætinu. Gestirnir frá Höfn í Hornafirði eru hins vegar enn í leit að sínum fyrsta sigri á tímabilinu, en Sindri er án stiga í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar eftir fyrstu fimm leiki sína.
Leikur dagsins í Bónusdeild karla:
Grindavík – Sindri kl. 18:00




