HomeBónus deildinBónus deild karlaAlltaf gaman að koma hingað og spila

Alltaf gaman að koma hingað og spila

Höttur mátti þola tuttugu stiga tap gegn toppliði KR, 112–92, á Meistaravöllum í sjöttu umferð Bónusdeildar karla í kvöld.

Gestirnir frá Egilsstöðum stóðu vel í heimamönnum fyrstu þrjá leikhlutana og munaði aðeins fjórum stigum fyrir lokafjórðunginn, en þar stungu KR-ingar af. Sveinn Búi, sem er uppalinn í KR og var þarna mættur aftur á sinn gamla heimavöll, skoraði 13 stig fyrir Hött sem er með fjögur stig í áttunda sæti deildarinnar.

Viðtal við Svein Búa Birgisson, leikmann Hattar, má sjá í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -