Valsmenn máttu þola sitt fyrsta tap á tímabilinu í Bónusdeild karla í kvöld þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Álftanesi á heimavelli á Hlíðarenda, 68–80. Fyrir leikinn hafði Valur unnið fyrstu fimm leiki sína í deildinni en er nú með tíu stig í öðru til fjórða sæti ásamt Álftanesi og Tindastóli.
Viðtal við Finn Frey Stefánsson, þjálfara Vals, má sjá í spilaranum hér að neðan.




