HomeBónus deildinBónus deild karlaFrá fram yfir landsleikjahlé

Frá fram yfir landsleikjahlé

Framherjinn Luka Gasic verður fjarri góðu gamni hjá Álftanesi í næsta leik liðsins í Bónusdeild karla og leikur að öllum líkindum ekki meira með liðinu fyrr en að loknu komandi landsleikjahléi. Baldur Ragnarsson, þjálfari Álftaness, staðfesti þetta eftir öruggan tólf stiga útisigur liðsins gegn Val á Hlíðarenda í kvöld, 80–68.  

Að sögn Baldurs er Gasic að glíma við meiðsli á öxl. Þjálfarinn greindi frá því að áherslan væri lögð á að gefa honum nægan tíma til að ná fullum bata, og því reikna Álftnesingar með því að hvíla hann fram yfir landsleikjahléið sem tekur við að lokinni næstu umferð deildarinnar.

Fréttir
- Auglýsing -