HomeBónus deildinBónus deild karlaÁlftanes sigraði Val í toppuppgjöri

Álftanes sigraði Val í toppuppgjöri

Það var boðið upp á toppleik í N1 höllinni í kvöld, þegar Valsmenn tóku á móti Álftanes í sjöttu umferð Bónusdeildar. Bæði lið hafa byrjað mótið frábærlega, Valur unnið alla sína leiki og Álftanes tapað aðeins einum leik, en það var einmitt síðasti leikur liðsins á móti KR. Frank Booker er að mæta á sinn gamla heimavöll í búningi gestanna.  Álftanes byrjaði töluvert betra en Valur kom að krafti inn og jafnaði, það var síðan jafnt allar tölur þar til um miðjan síðasta leikhluta að gæði gestanna komu í ljós og Álftanes vann 68-80.

Bæði lið mættu gíruð í leikinn og hraðinn var mikill og baráttan til fyrirmyndar, læti á pöllunum alvöru stemning. Álftnesingar voru mjög grimmir í vörninni og fannst Valsmönnum þeir stundum ekki fá dæmt sér í vil.  Það var töluvert mikið af tæknifeilum og menn að missa eða gefa boltann klaufalega frá sér. Mótlætið fór í skapið á Valsmönnum, sem skoruðu bara 9 stig, og gestirnir því með örugga forystu eftir 1. leikhluta, 9-21.

Valsmenn byrjðu annan leikhluta betur, nóg til þess að Baldur tók leikhlé eftir tvær mínútur og Valur búið að minnka muninn í sex stig. Við það jafnaðist leikurinn, stundum leit út eins og boltinn væri sjóðandi heitur, það gat engin handleikið hann.  Valsmenn héldu samt áfram að saxa á forskotið og náðu að jafna eftir mikla baráttu, 41-41.

Álftanes fór vel yfir málin í hálfleik og komu vel stemmd til leiks og náðu 8 stiga forystu, Valsmenn áttu í basli með vörn gestanna. Þegar leið á leikhlutann náðu Valsmenn meira jafnvægi í sinn leik, en náðu ekki að minnka muninn fyrr en í lokinn og gestirnir leiddu fyrir síðasta leikhluta 56-59.

Liðin skiptast á að byrja betur, aftur tekur Baldur leikhlé þegar tvær mínútur eru liðnar og Álftanes ekki búið að skora stig í leikhlutanum.  Eitthvað hefur Baldur náð að segja, því Álftanes fór að skila stigum á töfluna. Leikurnn var samt í miklu jafnvægi og mjög jafn. Álftanes fékk smá mómentum með sér um miðbik leikhlutans og náði aðeins að slíta sig frá gestunum. Þeir gengu á lagið og á meðan ekkert gekk upp sóknarlega hjá heimamönnum, gekk allt upp hjá gestunum. Leiknum lauk með nokkuð öruggum sigri gestanna, 68-80.

Hjá Valsmönnum var Lautier með 24 stig,  Simmons, með sinn besta leik hingað til, með 22 stig.  Siggi P var stighæstur hjá Álftanes með 19 stig og Semple með 15 stig.

Í sjöundu umferð fara Valsmenn til Egilsstaða og mæta þar Hetti, á sama tíma fær Álftanes Grindavík í heimsókn. Báðir þessir leikir fara fram 19. nóvember.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -