HomeLandsliðinEuroBasket 2029Úrslit: Sigur í Dyflinni

Úrslit: Sigur í Dyflinni

Ísland mætti Írlandi í kvöld í forkeppni EuroBasket kvenna 2029. Leikurinn fór fram National Basketball Arena í Dublin á Írlandi þar sem fjallkonurnar okkar knúðu fram sigur eftir mikinn spennuslag. Lokatölur 73-81 Íslandi í vil.

Rebekka Steingrímsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu í kvöld með 18 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar. Næstar henni voru svo Sara Rún Hinriksdóttir og Berglind Hlynsdóttir báðar með 14 stig.

Nánar verður fjallað um leikinn innan skamms.

Tölfræði leiksins

Fréttir
- Auglýsing -