A-landslið kvenna leikur mikilvægan útileik gegn Írlandi í kvöld, miðvikudaginn 11. nóvember, í forkeppni Evrópumótsins í A-riðli.
Viðureignin fer fram í National Basketball Arena í Dyflinni og hefst klukkan 19:00 að íslenskum tíma, en leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV 2 þar sem útsending hefst klukkan 18:50.
Íslenska liðið hefur sögulega haft nokkuð gott tak á því írska í gegnum tíðina, en af fjórum fyrri innbyrðis viðureignum þjóðanna í forkeppnum hefur Ísland unnið þrjá leiki en Írland einn.
Dómarateymi kvöldsins kemur frá Ítalíu, Portúgal og Litháen og er skipað þeim Andrea Valzani, Tiago Roxo Perdigão og Indrė Balnionytė-Gecevičienė, en eftirlitsmaður leiksins er Alenka Skreblin frá Slóveníu.




