A-landslið kvenna í körfubolta hefur hafið æfingar fyrir for-undankeppni EuroBasket 2029 þar sem liðið mætir Írlandi ytra miðvikudaginn 11. nóvember áður en tveir mikilvægir heimaleikir fara fram gegn Sviss laugardaginn 14. nóvember og Aserbaísjan þriðjudaginn 17. nóvember í Ólafssal, en miðasala á leikina fer fram á Stubb.
Í spilaranum hér að neðan má sjá viðtal við Pekka Salminen, landsliðsþjálfara kvenna, þar sem hann ræðir valið á hópnum, áherslurnar í komandi glugga og verkefnin framundan.




