HomeBónus deildinBónus deild karlaÚrslit kvöldsins í Bónus deild karla: KR eitt á toppnum eftir sigur...

Úrslit kvöldsins í Bónus deild karla: KR eitt á toppnum eftir sigur á Álftanesi

Fjórir leikir fóru fram í Bónus deild karla í kvöld og voru það útisigrar á öllum vígstöðvum.  

Í stórleik kvöldsins í Forsetahöllinni tryggði KR sér toppsæti deildarinnar með 102–94 sigri á Álftanesi og eru Vesturbæingar eina taplausa liðið eftir fimm umferðir með tíu stig. Keflavík sótti tvö stig í Breiðholtið með 100–90 sigri á ÍR, Grindavík vann öruggan 100–81 útisigur á Ármanns í Laugardalshöll og Tindastóll hafði betur gegn Hetti á Egilsstöðum, 80–73.  

Úrslit kvöldsins:

Álftanes – KR 94–102

Ármann – Grindavík 81–100

Höttur – Tindastóll 73–80

ÍR – Keflavík 90–100 

Fréttir
- Auglýsing -