HomeBónus deildinBónus deild karlaStólarnir sóttu tvö stig á Egilsstaði

Stólarnir sóttu tvö stig á Egilsstaði

Tindastóll rétti úr kútnum í Bónus deild karla í kvöld með 80–73 útisigri gegn Hetti í Varðarhöllinni á Egilsstöðum. Jafnræði var með liðunum framan af en Skagfirðingar náðu frumkvæðinu fyrir hlé og leiddu 46–40 í hálfleik.  

Í þriðja leikhluta juku gestirnir muninn í 14 stig og þótt heimamenn næðu að saxa á forskotið á lokasprettinum héldu Stólarnir fengnum hlut. Miklu munaði um hraðaupphlaupin þar sem Tindastóll skoraði 18 stig gegn aðeins 3 stigum Hattar, auk þess sem bekkur gestanna skilaði 33 stigum.  

Sigtryggur Arnar Björnsson fór fyrir Stólunum með 22 stig og Júlíus Orri Ágústsson skoraði 18 stig. Hjá Hetti voru Joshua James Martin og Aleksandar Pantelic atkvæðamestir með 18 stig hvor, en Martin bætti við 15 fráköstum. Eftir leikinn er Tindastóll með átta stig í efri hlutanum en Höttur situr eftir með fjögur stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -