Giannis Antetokounmpo, stjarna Miami Heat, sparaði hvergi stóru orðin þegar hann ræddi um Luka Doncic eftir 138–117 ósigur liðsins gegn Los Angeles Lakers í NBA-deildinni.
Doncic fór á kostum í leiknum og skilaði 42 stigum, 13 stoðsendingum og sjö fráköstum í 14 af 24 skotum sínum utan af velli. Frammistaðan heillaði Giannis upp úr skónum, en sjálfur skilaði Grikkinn 30 stigum, 12 fráköstum og sjö stoðsendingum í tapinu.
„Hann er augljóslega einn besti skorari sem hefur spilað þennan leik, ef ekki sá besti,“ sagði Antetokounmpo eftir leik.
Þegar blaðamaður greip fram í og spurði hvort hann ætti við einn þann besta í dag eða í allri sögu deildarinnar stóð ekki á svörum:
„Í dag? Nei, alls ekki bara í dag. Í allri sögunni. Mér finnst eins og sumt fólk sé hrætt við að segja það upphátt, en hann á heima þarna uppi.“
Doncic jafnaði jafnframt met goðsagnarinnar Kobe Bryant í leiknum. Hann náði að skora yfir 20 stig í fyrri hálfleik í fimmta leiknum í röð – nokkuð sem enginn leikmaður Lakers hafði afrekað síðan Bryant lék þann leik árið 2007. Þá er þetta jafnframt fimmti leikurinn í röð þar sem slóvenski töframaðurinn skorar að minnsta kosti 35 stig, sem jafnar lengstu hrinu félagsins síðan á dögum Bryant.
Doncic þykir líklegur kandídat í baráttunni um MVP-verðlaunin í upphafi tímabils en hann er með 37,7 stig, 8,2 fráköst og 7,3 stoðsendingar að meðaltali í leik með 48,2% skotnýtingu og 43,2% nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna. Lakers hefur farið vel af stað og unnið sex af fyrstu átta leikjum sínum.




