Báðum stórliðum Belgrad-borgar, Rauðu stjörnunni og Partizan, hefur verið refsað harðlega af aganefnd EuroLeague í kjölfar mikilla óeirða og atvika í innbyrðis viðureign liðanna í 7. umferð.
Rauða stjarnan fékk þyngsta dóm nefndarinnar en félagið var sektað um 115 þúsund evrur, rúmar 17 milljónir króna, ásamt því að stuðningsmönnum liðsins hefur verið meinað að mæta á næstu fimm útileiki liðsins í Evrópudeildinni. Partizan slapp heldur ekki óskaddað og var sektað um 49 þúsund evrur, tæpar 7,3 milljónir króna.
Að sögn aganefndar má rekja refsingarnar til margvíslegra brota í stúkunni; flugelda og blysa, móðgandi framkomu áhorfenda, notkunar leysigeisla, hluta sem kastað var inn á völlinn, innrásar á leikgólfið og ófullnægjandi öryggisgæslu.
Partizan vann leikinn með dramatískum hætti, 85–82 í framlengingu, þar sem Alessandro Pajola setti niður sigurþristinn á lokasekúndunum. Þrátt fyrir tapið situr Rauða stjarnan vel að vígi í efri hluta deildarinnar með sex sigra eftir níu umferðir (6–3), á meðan Partizan hefur tapað tveimur leikjum í röð síðan og situr utan tíu efstu sætanna með fjóra sigra og fimm töp (4–5).




