HomeBónus deildinBónus deild karlaFimm bestu kanar Bónus deildar karla - Nýtt nafn á toppi listans

Fimm bestu kanar Bónus deildar karla – Nýtt nafn á toppi listans

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu þeir Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fóru yfir það helsta. Eftir miklar sviptingar í síðustu umferð var komið að því að uppfæra styrkleikalistann yfir bestu bandarísku leikmenn Bónusdeildar karla. Þar urðu töluverðar breytingar: nýr maður tekur toppsætið, Jeremy Pargo ryður sér leið inn á listann og Montez Mathis dettur út af topp fimm:

Jamir Chaplin fellur úr toppsætinu

Styrkleikalisti: Bestu kanarnir í Bónusdeildinni

1. Dedrick Basile — Álftanes (Upp um 1 sæti)

Tekur toppsætið af Chaplin. Basile er búinn að vera mikilvægasti leikmaðurinn í besta liðinu. Hann er stoðsendingahæstur í deildinni og dugar allan leikinn, en hann kom að 16 af 31 stigi Álftaness í fjórða leikhluta og framlengingunni gegn Tindastóli.

2. Jamir Chaplin — Keflavík (Niður um 1 sæti)

Fellur úr toppsætinu. Hann er búinn að hækka meðaltal stiga og framlags, en það hefur dregið aðeins af honum í seinni hálfleik. Það er þó enn hægt að færa sterk rök fyrir því að hann sé besti leikmaður deildarinnar.

3. Jeremy Pargo — Grindavík (Nýr á lista)

Kemur beint inn á topp fimm eftir að hafa verið utan lista í síðustu viku. Við vitum öll hvað hann getur og mun gera fyrir Grindavík. Pargo er búinn að vinna sér inn þá virðingu og allir sáu hvernig hann kláraði leikinn gegn Njarðvík.

4. Marquise Jackson — Höttur (Niður um 1 sæti)

Fellur niður um sæti. Keflavík náði að hægja á honum í síðustu umferð en hann endaði engu að síður með sjö stoðsendingar.

5. Kaleb Higgins — Sindri (Stendur í stað)

Heldur sínu sæti. Hann er framlagshæsti leikmaður deildarinnar, næststigahæstur og næststoðsendingahæstur, en líður áfram fyrir sigurleysi Sindramanna.

Næstur inn:

Makeye Richards — Njarðvík: Var til umræðu síðast en bankar nú fast á dyrnar eftir 42 stiga leik gegn Grindavík. Er búinn að vera flottur en liðið er enn sigurlaust.

Dottnir út af topp fimm:

  • Montez Mathis (ÍR): Vék af listanum fyrir Jeremy Pargo eftir að hafa setið í fjórða sætinu í síðustu uppfærslu.
  • Kynion Hodges (Ármann): Var næstur inn síðast en missir þá stöðu.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -