Körfuknattleiksdeild KR fagnar um þessar mundir merku afmæli en 70 ár eru liðin frá stofnun hennar þann 4. október 1956. Af því tilefni voru formenn deildarinnar frá upphafi sérstakir heiðursgestir á leik KR og Sindra í Bónusdeild karla í DHL-höllinni á fimmtudag.
Alls hafa 29 einstaklingar gegnt formennsku hjá deildinni á þessum sjö áratugum. Fjórtán þeirra voru mættir í Frostaskjólið í gær og áttu saman ánægjulega stund fyrir leik. Þar fór Gísli Georgsson, fyrrverandi formaður, yfir sögu deildarinnar og Egill Ástráðsson, núverandi formaður, gerði grein fyrir stöðu félagsins í dag. Átta fyrrverandi formenn eru látnir og sjö komust ekki á viðburðinn.
Körfuknattleiksdeild KR færði formönnunum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt framlag þeirra og forystu í gegnum árin.
Hér má sjá myndir frá athöfninni
Formenn körfuknattleiksdeildar KR frá upphafi
- Pétur Rögnvaldsson (1956–1957) †
- Sigurður P. Gíslason (1957–1958) †
- Gunnhildur Snorradóttir (1958–1959) †
- Helgi Sigurðsson (1959–1964) †
- Halldór Sigurður Hafsteinn Sigurðsson (1964–1965) †
- Þráinn Scheving Sigurjónsson (1965–1966)
- Helgi Ágústsson (1966–1971)
- Þorvaldur Blöndal (1971–1972) †
- Hjörtur Hansson (1972–1974)
- Jón Otti Ólafsson (1974–1976) †
- Kolbeinn Pálsson (1976–1978)
- Helgi Ágústsson (1978–1981)
- Björgvin Schram (1981–1982)
- Ágúst Líndal (1982–1983)
- Benedikt Jónsson (1983)
- Guðmundur Eiríksson (1984)
- Gunnar Pálsson (1984–1985)
- Kristinn Árnason (1986)
- Gunnar Jóakimsson (1986–1988)
- Ómar Þór Scheving (1988–1989)
- Þorsteinn Gunnarsson (1989–1990)
- Sófus Guðjónsson (1990–1991)
- Ingólfur Möller Jónsson (1991–1993)
- Sófus Guðjónsson (1993–1996)
- Gísli Georgsson (1996–2000)
- Magnús Guðmundsson (2000–2001)
- Birgir Hákonarson (2001–2004)
- Böðvar Guðjónsson (2004–2014)
- Guðrún Kristmundsdóttir (2014–2018) †
- Böðvar Guðjónsson (2018–2022)
- Ellert Arnarson (2022–2024)
- Egill Ástráðsson (2024–)





